Friday, December 24, 2004
Thá eru jólin ad ganga í gard enn einu sinni. Thad er margt sem kemur upp í huga manns á thessum tíma fridar og hamingju, thó sérstaklega thar sem ég er ekki staddur thar sem hef upplifad thessa tíma alla mína tíd. Mun ég hér í Costa Rica upplifa jólin á annan hátt, í nýju umhverfi, med odru fólki og upplifa adra sidi. Hefur mér ordid hugsad mikid til jólaundirbúningsins hér, thó sérstaklega um daginn thar sem ég var staddur á strondinni í miklum hita og synti í sjónum og heyrdi í fjarska spilada jólatónlist og sá skreytt húsin med jólasveinum og snjókollum (sem er btw frekar fyndid thar sem flestir hér hafa aldrei upplifad snjó). Einnig í dag thegar ég heyrdi jólatónlist í naesta húsi en einnig í sláttuvél fyrir utan og fannst mér thad ekki alveg passa saman. Thad eru margir smáhlutir á Íslandi sem mér hefur verid hugsad til, sem e.t.v. mér fannst ekki thad sérstakir medan ég upplifdi thá sídustu jól. Fjolskylda mín á Íslandi heldur mjog mikid í hefdir sem mér finnst mjog skemmtilegt. Aetla ég ad nefna nokkur daemi um thad sem ég hef verid ad hugsa.
Eg sakna thess ad fara í Bústadakirkju fyrsta sunnudag í adventu á Adventukvold med fjolskyldunni og hitta vinina thar med sínum fjolskyldum. Ég sakna adventukransins heima med dokk raudu feitu kertunum, sem er svo gamall ad alveg ad detta í sundur, en ég mundi ekki fyrir nokkurn mun vilja kaupa nýjan og ad syngja baedi íslensk og thýsk log á kvoldin thar sem eina lýsingin er kertaljósid fridsaela sem ég get starid á tímunum saman. Ég sakna adventukransins med kreminu sem mamma bakar. Ég sakna thess ad pakka jólakortum fyrir Amnesty. Ég sakna alltaf somu jólaskreytinganna heima, thar sem allt hefur sinn stad, stjornurnar í gluggana, seríunar og kertin. Ég sakna thess ad baka og borda laufabraud og smákokurnar hennar mommu med jólatónlist af vínilplotum í bakgrunni. Ég sakna thess ad fara med jólastjornuna til Moggu. Ég sakna súkkuladidagatalsins ásamt gomlu dagatalanna. Ég sakna bláu jólaljósanna fyrir utan húsid. Ég sakna thess ad fylgjast med Kotlu geislandi af jólafíling í byrjun des og hlustandi á íslensku jólalogin. Ég sakna thess ad skrifa, teikna og skreyta jólakortin med gull og silfurpennum og glimmeri med jólatónlist spilada í bakgrunni. Ég sakna thess ad fá hlýlegar kvedjur og fallegt bros frá ollum sídustu daga fyrir jól thegar fólk býdur manni gledileg jól. Ég sakna thess ad labba laugarveginn og skoda og kaupa gjafir. Ég sakna íslistaverkanna á laugarveginum sem og skreytinganna. Ég sakna thess ad fara út med vinunum og thurfa alltaf ad bída eftir Hrafni og Vimmi alltaf jafn pirradur. Ég sakna thess ad fara í Japis eda Hljómalind og kaupa geisladisk handa Hilmi og ad fara í Stellu og kaupa eitthvad handa mommu og ad fara í Gudstein og finna eitthvad handa pabba. Ég sakna thess ad fara ad kaupa jólatré og alltaf deila vid mommu og pabba thar sem ég vil fá stórt en thau lítid. Ég sakna thess ad sjá Vimma drekka meira kók en vanalega sem ég hélt ad vaeri ekki mogulegt. Ég sakna jólagjafahúmors Magga. Ég sakna thess ad fara í Langholtskirkju á midnaeturjólatónleikana, hlusta á kórsonginn, orgelleik, horpuleik og flautuleik, drekka allt of heitt kakó í hlénu thannig ég brenni mig á tungunni og enda svo med ad syngja Gloria in exelsis deo thar sem thak kirkjunnar aetlar naestum ad fjúka. Ég sakna thess ad vera ad vinna í hinum ýmsu hlutum med Andra á fullu langt fram á nótt sem tekst alltaf ad klára ad lokum. Ég sakna thess ad labba nidrí bae á Thorláksmessu í fridargongunni med kertaljós í hendi og hlustandi á kór MH, sem endar svo med raeduholdum nidrá Ingólfstorgi og med ad allir vidstaddir, sem eru ad farast úr kulda thrátt fyrir ad vera vel dúdadir, syngja saman Heims um ból undir stjórn Thorgerdar. Sakna thess ad fara svo til Rognu ad borda thaer kraesingar sem hún hefur galdrad og ad fara svo nidrí bae ad hlaupa á fullu allan laugarveginn til ad kaupa sídustu gjafirnar fyrir klukkan 11 og ad fylgjast med fólkinu thjóta til og frá á laugarveginum. Sakna thess ad heisla naestum odrum hverjum manni á laugarveginum og kasta gódri kvedju med brosi. Ég sakna thess ad setja klink í kassa hjálpraedishersins. Ég sakna thess ad skreyta jólatréd seint á Thorláksmessukvold med gomlu hvítu ljósunum, raudu kúlunum, íslensku fánunum og fulglunum tveimur efst medan nartad er í hangikjot og drukkid jólaglogg. Ég sakna thess ad fara á leidi beggja afa og ommu og setja krossana og blómin. Ég sakna thess ad keyra út gjafir á adfangadag med Hilmi med jólasveinahúfur. Ég sakna thess ad labba til Guddu thar sem hún opnar hurdina og thad sést alltaf bara hausinn hennar á hlid thví hún er alltaf í náttsloppnum thegar ég kem med gjofina til hennar. :) Ég sakna thess ad fara uppá Grensásdeild í messu um hádegid á adfangadag og rabba svo vid jólakokuát. Ég sakna thess ad fara í Bústadakirkju kl. 6 vel uppápússadur og ad láta pabba gera bindishnútinn medan hlaupid er uppí krikju í snjónum vel snemma til ad fá saeti inní kirkjunni sjálfri. Ég sakna thess ad heyra roddina hans Pálma thegar hann segir í messunni: Gledileg Jól. Ég sakna thess ad syngja Heims um ból og fá gaesahúd vid songinn. Ég sakna thess ad labba heim úr kirkjunni nidur Litlagerdid thar sem madur rennir sér á klakanum, svo yfir snjóinn á túninu og sjá tunglid og stjornurnar ef heppnin er med manni (hins vegar er ekki lengur haegt ad sjá stjornurnar thar sem búid er ad setja upp ljós núna vid stíginn...:(...) Ég sakna thess ad borda rjúpuna gódu vel eldada af mommu eftir ad pabbi hefur lesid jólagudspjallid sem madur heyrir aldrei of oft. Ég sakna thess ad opna pakkana í rólegheitunum í jakkafotunum liggjandi uppí sófanum, sem er svo thaegilegur, og bordandi lakkrískonfekt, hnetu M&M´s og bland af salthnetum og ljósum súkkuladirúsínum og drekkandi jólaol. Ég sakna thess ad opna jólakortin indaelu ad midnaetti og fá ómetanlegar kvedjur. Ég sakna thess ad vaka langt frameftir med Hilmi. Ég sakna thess ad vakna á jóladag í kyrdinni og sjá snjó út um gluggann á trjánum. Ég sakna thess ad borda jólabraudid hennar mommu á jóladagsmorgun sem er eini maturinn sem ég laet smjor á. Ég sakna thess ad gera ekki neitt allan jóladag nema ad fara í messu og stuttan gongutúr í kyrrdinni. Ég sakna thess ad hanga med vinum mínum milli jóla og nýárs, thó sérstaklega hin gomlu spilakvold med stákunum langt fram á morgun undir glasi med jólaoli og piparkokum thar sem vandamál heimsins voru leyst og spilad var Trivial Persuit og enginn gat aldrei brúna litinn.. Ég sakna thess ad spila útsetningar afa af jólalogum á píanóid. Ég sakna lyktarinnar af jólatrénu. Ég sakna thess ad bjóda gamla vinahópnum úr 7. og 8. bekk í piparkokur og hlaeja med Heiddu, Guddu, Sondru og Andra thví thad ríkir mjog sérstakur húmor thar á milli. Ég sakna thess ad lesa jólabaekurnar, thó sérstaklega um Trolla og bókina med lyktunum. Ég sakna thess ad kaupa flugelda hjá KFUM thar sem manni er alltaf tekid vel og ég vil kaupa og kaupa og fae pabba med mér í thví, en Hilmir naer ad draga úr honum ad kaupa ekki mikid. Ég sakna gomlu veislana heima hjá Elínu og Paul thar sem sungnir voru saenskir songvar og braudtertan góda bordud og saltstangir og svo fékk madur pakka med mandarínu og stjornuljósi undir lokin. Ég sakna áramótamessunnar í bústadakirkju thegar sungid er: Nú árid er lidid. Ég sakna thess ad fara á brennu á Geirsnefi (sem er hins vegar miklu verri núna en thegar Hagkaup var med hana) og finna hlýju eldsins medan stjornuljósinu er sveiflad. Ég sakna thess ad horfá áramótaskaupid sem er naestum alltaf jafn lélegt en samt horfa allir á thad og ekki sést ein einasti bíll út um gluggan, hvorki í ártúnsbrekkunni né á breidholtsbrautinni. Ég sakna raudu slysablysunum sem kveikjum alltaf í. Ég sakna thess ad sjá gamla árid fara og thad nýja koma í sjónvarpinu ad midnaetti medan sungid er: “Nú árid er lidid”. Ég sakna thess ad sjá brjálaedid í Íslendingunum um midnaetti thegar horfi á alla flugeldana. Ég sakna thess ad óska ollum gledilegs árs med tárin í augunum vegna thakklaetis fyrir góda tíma, en einnig med smá sorg thar sem thetta ár kemur aldrei aftur eins og segir í laginu.
Já, thad eru margir smáhlutir sem madur saknar thetta árid fjarlaegur sínu landi. Thó er thad addallega soknudur á gódum og rólegum tímum med fjolskyldu og einnig vinum. Jólin eru tími fridar, hamingju, rólegheita og vaentumthykju. Jólin eru tími nákominna ad vera saman. Einungis thad ad standa vid hlid nákomins, horfa í augun sem segja svo mikid og horfa á brosid sem geslar út frá sér, fadma ad sér og segja svo Gledilega Hátíd. Thessi tvo ord sem eru svo einfold, en thó segja svo mikid. Og thegar madur hlustar á thau og horfir á bros sem segir einnig meira en thúsund ord og í augu thar sem eins og ákvedin tengsl eru á milli augnanna, thá finnur madur fyrir hamingju í hjarta sínu og gledi og thakklaeti streyma um aedar líkamans. Thetta eru jólin fyrir mér.
Ég vil vitna í Vimma thar sem hann sagdi vid mig:
Get ég nú sagt thér thad ad ég mun ekki upplifa jól thetta árid thví thad sem ég tharf er ad vera í fadmi fjolskyldu og nánustu vina auk thess sem ad engin jól eru án kirkju kl. 6 og heims um ból med kertaljós í Bústadakirkju.
Ydur er í dag freslari faeddur, sem er Kristur Drottinn. Dýrd sé Gudi í upphaedum, og fridur á jordu med monnum, sem hann hefur velthóknun á.
Gud gefi ykkur ollum fridsaela tíma med nákomnum og megid thid finna trú, frid, kaerleika og hamingju í hjortum ykkar. Njótidi thess.
Gledilega hátíd!