Friday, July 09, 2004
Ég held áfram med helgarfaerslurnar. Nú er thad helgin 19-21. jún. Fjolskylda módurstystur minnar hér hafdi bodid mér med theim ad fara á strondina og thádi ég thad bod. Ég vaknadi eldsnemma á laugardagsmorgni. Tók straetóinn nidrí bae. Alltaf kemur mér jafn mikid á óvart hvad mikid af fólki er á ferli snemma morguns hér. Gekk spol nidrí bae sem mér finnst alltaf jafn skemmtilegt. Hef komist ad thví ad mér finnst mjog gaman ad vera í midbae. Baedi hér í San José og einnig í Reykjavík. Ad rolta um baeinn, skoda fólkid og setjast nidur í un parque er alveg stórskemmtilegt. Maeli med midbae Reykjavíkur fyrir ykkur Íslendingar gódir, einnig ef thid thurfid ad versla thá maeli ég med ad thid farid á laugarveginn frekar en í Kringluna eda dótid uppí Kópavogi thar sem thad er miklu skemmtilegra og thid styrkid ekki verslunarmidstodvar, en smám saman hef ég vaxid á móti verslunarmidstodvum. En allavega, ég tók naesta bus heim til módursystur minnar. Thegar ég kom voru thau enn ad taka sig til, eru fjolskylda sem er dáldid óskipulogd, en mér finnst thad bara gaman thrátt fyrir ad heili minn lifir á skipulagningu. Ég snaeddi bara morgunmat thar í rólegheitunum. Thegar thau voru lokins til logdum vid af stad í thessum pínkulitla bíl theirra, skil ekki hvernig hann getur keyrt, fullur af fólki og farangri. Thar sem ég er mjog hávaxinn er ekkert sérstaklega thaegilegt ad vera í litlum bílum en thad var alveg í lagi. Vid keyrdum í nokkra klukkutíma, m.a. yfir stóra brú sem var gjof frá Taiwan til Costa Rica. Mér finnst thad svoldid merkilegt og grennsladist meira um thad og komst thá ad thví ad Costa Rica hefur mikil samskipti vid Taiwan, sem hlýtur ad leida til thess ad stjórnmálasamband Costa Rica og Kína er ekki mjog gott. En thessi brú er allvega mjog flott og mikilvaegt samgongutaeki. Sídan komum vid til borgar/baejar sem heitir Nicoya, thar fengum vid okkur ad borda. Pantadi ég mér kjúkling sem audvitad var borinn fram med hrísgrjónum og baunum eins og allt hér í Costa Rica. Fékk ég mér ávaxtadrykk sem var yndislega gódur. Hef ákvedid ad nýta thad vel ad vera hér í Costa Rica og drekka mikid ad ferskum ávaxtadrykkjum. Fórum vid sídan í súpermarkadinn. Fann ég thar ódýrustu banana sem ég hef séd. Stykkid á 9 colones sem thýdir stykkid á 1,8 kr. Thad fannst mér alveg magnad. Enda bý ég í bananalandinu. Mjog oft í dagbladinu eru fréttir um bananaútflutning til Evrópusambandsins sem er víst mjog mikilvaegt fyrir efnahag Costa Rica. Svo eru til pínkulitlir bananar sem eru á staerd vid thumalfingur. Einnig platanos sem eru af somu aett en staerri og venjulega steiktir. Líta samt alveg eins út og bananar. En hér ádur fyrr ádur en túristminn vard mikilvaegur thá hélt bananaútflutningur efnahag landsins uppi. En nóg af thví. Vid logdum aftur af stad og komum svo til Playa Samara en playa thydir stond. Vid bjuggum a einskonar hóteli sem voru íbúdir thannig ad bjuggum í litlu húsi í einskonar litlu hverfi sem var hótelsvaedid. Vid komum okkur fyrir og um kvoldid tók ég bordtennisleik sem gekk ekkert svaka vel en var mjog gaman og ég svitnadi súper mikid, enda alveg súper heitt vid strondina. Svo tók ég eftir thví ad allur haegrihandleggur minn var brunninn. Eftir smá hugsun mundi ég eftir thví ad haegri hondin hafdi verid útum gluggan á bílnum naestum alla leidina og thess vegna hefur hún brunnid en ekki sú vinstri. Var mjog skondid ad sjá muninn. Á sunnudeginum vaknadi ég um 5 leytid vid einhver ogurleg hljód. Ég fór á faetur og rolti út og tók thá eftir thvada oskur thetta voru, thetta voru aparnir í trjánum. Fannst mér thad alveg magnad. Ákvad ég ad fara ad synda í sjónum sem var einungis um 100 metra í burtu. Var enginn á strondinni og var thad mjog gott. Eftir morgunmat fórum vid oll saman í gongutúr ad naestu strond sem var mjog gaman, sáum apa í trjánum, krabba skrída á jordinni og fullt af fidrildum. Á hinni strondinni sem var mjog stor ákvad ég ad fara ad hlaupa og hljóp hana á enda og til baka, hafdi verid langt sídan ég hafdi fengid mér hreyfingu, eftir hlaupid tók ég svo sundsprett. Var thad mjog gott. Thegar heim kom aftur plontudum vid okkur í sundlaugina á hótelinu vid barinn og horfdum á fótboltaleik milli Costa Rica og Kúbu. Fólk allmennt hér í Costa Rica er rosalega spennt fyrir fótbolta og horfir á alla leiki. Ákvad ég ad reyna ad blandast menningunni og var innan um fólkid spenntur yfir leiknum, hálfur í vatni og hálfur uppúr, med bjór í annarri og krepptan hnefann í hinni vegna spennings. Tókst alveg ágaetlega ad upplifa stemmarann thrátt fyrir thad ad ég sé ekki mikill addáandi fótbolta. Eftir leikinn fór ég í smá apaleidangur um nálaeg tré sem var alveg mmmeiriháttar, tókum vid svo einn blakleik thar sem ég var thakklátur fyrir grundvallarkennslu í blaki sem ég fékk í verzló. Um eftirmiddaginn lagdi ég mid og tók svo kvoldid rólega. Chilludum í sundlauginni og horfdum á Harry Potter thar og hlustadi ég svo á diskana mína í hengirúminu vid húsid. En thad minnti mig einmitt á hann Andra, thar sem hann er med hengirúm heima hjá sér thar sem madur hefur dvalid ekki ófáum stundum. Á mánudagsmorgninum létu aparnir ekki heyra í sér en ég vaknadi samt sem ádur um 5 til ad fara ad synda vid sólarupprásina. Thad var alveg mmmeiriháttar. Sídan hjálpadi ég sjómonnum nokkrum ad koma fiskibát theirra út í sjó og rolti um strondina í morgunskininu. Thegar kom ad húsinu sá ég hóp edla vera á roltinu sem mér fannst wicked awesome. Thaer voru risa stórar og bara hressar. Eftir ad fylgjast med theim um stund tékkadi ég á lidinu sem var vaknad og fengum vid okkur morgunmat. Tókum thad rólega í sundlauginni ádur en vid logdum af stad heim. Stoppudum vid á veitingastad á heimleidinni thar sem ég fékk mér platanos (naestum bananar)(steikir ad venju) med osti sem var alveg ágaett, og ad sjálfsogdu fékk ég mér einhverskonar ávaxtadrykk. Sídan fórum vid heim. Thessi ferd var mjog fín, mjog róleg og thaegileg og slappadi ég vel af. Sá ég dýralíf og naut sjávarins. Svona verdur madur líka ad hafa thetta vid og vid.
Comments:
frábært að lesa bloggin þín.. hlæ allan tímann þar sem ég kannast við þetta allt saman.. skemmtu þér vel!
Post a Comment
